Í Múlabæ er áhersla lögð á virðingu, virkni og vellíðan. Fólk er hvatt til að nýta þá þjónustu sem er í boði og virkja þannig bæði hug og hönd.
Hjúkrunarstýrð heilsugæsla er í Múlabæ. Allir skjólstæðingar geta leitað þangað og skjólstæðingar eru í reglulegu eftirliti. M.a. er boðið upp á lyfjaeftirlit, bólusetningar, sáraskipti, aðstoð við athafnir daglegs lífs, ráðgjöf ásamt því sem að hjúkrunarfræðingarnir aðstoða með að sækja um hina ýmsu þjónustu og hjálpartæki sem stutt geta við sjálfstæði einstaklingsins.
Æfingasalur er opinn daglega og boðið er upp á einstaklingshæfða þjálfun ásamt stólaleikfimi. Vinnustofa og listasmiðja eru opnar alla daga og einnig er boðið upp á heita bakstra. Fjölbreytt félagsstarf er eftir hádegi sem tekur mið af þörfum og áhugasviði skjólstæðinganna hverju sinni.
Boðið er upp á morgunverð, hádegisverð og eftirmiðdagskaffi.
Almenn sérhæfð dagdvöl – 52 pláss
Er stuðningsúrræði fyrir aldraða sem að staðaldri þurfa eftirlit, umsjá og stuðning til að geta búið í sjálfstæðri búsetu. Markmiðið er að bæta heilsu og velferð einstaklingsins, hámarka getu hans til færni og sjálfsbjargar, auka félagstengd lífsgæði. Algengast er að vera 2-3 daga í viku.
Endurhæfing felur í sér einstaklingsmiðaða endurhæfingu í 4-12 vikur.
Árangursríkast er að vera 3-5 daga í viku.
Nánar um mikilvægi líkamsþjálfunar: Baráttan um vöðvatap
Allir skjólstæðingar geta leitað þangað og skjólstæðingar eru í reglulegu eftirliti.
Boðið upp á lyfjaeftirlit, bólusetningar, sáraskipti, aðstoð við athafnir daglegs lífs, ráðgjöf ásamt því sem að hjúkrunarfræðingarnir aðstoða með að sækja um hina ýmsu þjónustu og hjálpartæki sem stutt geta við sjálfstæði einstaklingsins. Nánar
Sæktu bækling til útprentunar með öllum helstu upplýsingum um starf og dagskrá Múlabæjar.
Heilbrigðisstarfsmaður getur sent inn umsókn, t.d. heimilislæknir, heimahjúkrun eða starfsfólk Landspítalans.
Daggjaldið árið 2025 er kr. 1619,- sem ákvarðað er með reglugerð ár hvert.
Það er biðlisti en hver umsókn er metin m.t.t. hversu brýnt sé að umsækjandi komist að.
Það er hægt að vera frá 2 dögum og upp í 5 daga í viku.
Aldraðir sem eru í sjálfstæðri búsetu og þurfa á endurhæfingu eða stuðningi að halda.
Boðið er upp á tækjasal og æfingasal sem eru opnir alla daga. Daglega fer fram stólaleikfimi og í félagsstarfinu er fjölbreytt dagskrá. Vinnustofa og listasmiðja bjóða upp á fjölbreytta iðju og eru opnar alla daga.
Já þú getur það en akstursþjónusta á vegum Múlabæjar keyrir aðeins innan Reykjavíkur.
Já, þú ert alltaf velkominn en akstursþjónusta Múlabæjar keyrir frá kl 8 til kl 9:30. Ef þú vilt koma seinna þá þarf umsækjandi sjálfur að koma sér á staðinn.