Múlabær, dagþjálfun er sjálfseignarstofnun sem rekin er á daggjöldum frá Sjúkratryggingum íslands og greiðsluþátttöku skjólstæðinga. Dagþjálfunin er fyrir einstaklinga sem búa í sjálfstæðri búsetu. Annars vegar er um að ræða 52 almenn sérhæfð dagdvalarrými og hins vegar 18 sérhæfð endurhæfingapláss.
Markmið Múlabæjar er að efla og styðja skjólstæðinga til virkni og þjálfunar og stuðla þannig að vellíðan og sjálfstæði einstaklingsins.
Einkunnarorð Múlabæjar eru virðing virkni og vellíðan
Múlabær var stofnaður árið 1982 af Samtökum aldraðra (SA), Reykjavíkurdeild Rauða krossins (RRKÍ) og Sambandi íslenskra brjóstholssjúklinga (SÍBS). Fyrsti samningur við ríkið um dagdvöl fyrir aldraða var undirritaður þann 6.1. árið 1983 og þann 27.1.1983 hófst starfsemin í húsnæði SÍBS að Ármúla 34. Breyting var á fulltrúaráði þegar Félag eldri borgara kom inn í stað SA og árið 2023 tók Örykjabandalag Íslands (ÖBÍ réttindasamtök) sæti í fulltrúaráði í stað RRKÍ.
Fulltrúaráð er skipað tveimur fulltrúum hvers aðildarfélags sem hefur það meginhlutverk að skipa í 5 manna stjórn Múlabæjar. Stjórn ræður forstöðumann sem ber ábyrgð á rekstrinum. Múlabær er óhagnaðardrifin (non-profit) sjálfseignarstofnun.
Árið 2018 flutti Múlabær starfsemina að Síðumúla 32 í húsnæði sem hannað var fyrir starfsemina.
Forstöðumaður Múlabæjar er Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Aðalheiður Elín Bergsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Astrid Eiríksdóttir, leiðbeinandi á vinnustofu
Auður Lóa Guðnadóttir, listfræðingur
Ásgerður Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Elín María Jóhannsdóttir, ráðskona
Hafdís Bjarnadóttir, sjúkraliði og tannfræðingur
Heiða Björk Reynisdóttir, þroskaþjálfi
Heiða Dís Einarsdóttir, virkniþjálfi
Linda Björk Eiríksdóttir, þroskaþjálfi og sjúkraliði
Karla Dögg Karlsdóttir, myndlistakennari
Marta Rybybcia, framreiðsla
Ragnheiður Sigurgeirsdóttir, sjúkraliði
Rósa Jónsdóttir, sjúkraþjálfari
Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri
Sylvía Sigurðardóttir, virkniþjálfi
Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, hjúkrunarfræðingar, Forstöðumaður
Andrjes Guðmundsson, formaður
Guðrún Barbara Tryggvadóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir
Ragnar Davíðsson
Sigurbjörg Gísladóttir
Varamenn:
Árni Gunnarsson
Bjarni Bjarnason
Helga Þóra Jónsdóttir
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir
Geir Guðsteinsson
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir
Svana Gunnarsdóttir, formaður
Gunnhildur Sveinsdóttir
Halldóra Árný Ingvadóttir
Maríus Þór Haraldsson
Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir
Varamenn:
Fríða Rún Þórðardóttir
Stefanía Valgeirsdóttir
Sverrir Kaaber
Guðjón Brjánsson 1982-1989
Hallbera Friðriksdóttir 1989-2010
Agnes Raymondsdóttir 2010-2013
Í Múlabæ hefur í nokkur ár verið starfræktur Gjafa- og styrktarsjóður Múlabæjar. Tilgangur sjóðsins er að fjármagna kaup á tækjum og búnaði sem nýtist starfsemi Múlabæjar. Hafa fjölmargir einstaklingar styrkt starfsemina með framlögum í sjóðinn, sem komið hafa að góðum notum. Erum við þessum aðilum afar þakklát.
Vorið 2024 var Múlabær skráður á almannaheillaskrá hjá Skattinum. Þar með njóta frjáls framlög einstaklinga og lögaðila tiltekins frádráttar frá tekjuskatti, í samræmi við skattalög hverju sinni. Nú eru t.d. framlög á bilinu kr. 10.000 – kr. 350.000 pr. einstakling frádráttarbær frá tekjuskattsstofni viðkomandi einstaklings við álagningu skatta árið eftir. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skattsins, https://www.skatturinn.is/einstaklingar/tekjur-og-fradraettir/skattfradrattur-vegna-gjafa-framlaga/
Styrktarsjóður Múlabæjar:
Banki: 133-15-380757
Kennitala: 580310-0440
Netfang: thorunn@mulabaer.is
Vinsamlega tilgreinið kennitölu greiðanda.
Heilbrigðisráðherra ásamt mörgum góðum gestum heiðruðu okkur með nærveru sinni.
Einnig er í húsnæðinu æfingasalur, listasmiðja, eldhús og matsalur, setustofa, hvíld ásamt heilsugæslu og fundarherbergjum.