Þann 3.11. var opið hús í Múlabæ fyrir skjólstæðinga, aðstandendur og velunnara. Það var mjög góð mæting og fólkið okkar naut þess að sýna aðstöðuna, sérstaklega allar breytingarnar, nýja tækjasalinn, vinnustofuna og listasmiðjuna. Takk þið öll sem mættuð fyrir notalega samveru.
Nú hafa allir skjólstæðingar fengið einstaklingshæft æfingaprógramm í nýju styrktartækin og við finnum fyrir miklum áhuga meðal okkar fólks og æfingarnar eru að að skila sér í auknum styrk og betri líðan að ógleymdri gleðinni sem skín úr hverju andliti að lokinni góðri æfingu.
Myndirnir voru teknar af Kristni Ingvarssyni ljósmyndara og þökkum við honum kærlega fyrir sem og Tryggva Kristni sem lék á saxafón.