Þann 27.1. voru 40 ár liðin síðan Múlabær tók formlega til starfa. Í tilefni af þessu afmælisári verður efnt til margvíslegra viðburða á árinu sem hófst með afmælisboði þann 27.1. þar sem ýmsum ráðamönnum í heilbrigðisþjónustunni var boðið að koma. Þar ber helst að nefna heilbrigðisráðherra. Nokkur erindi voru flutt og kunnum við framsögumönnum bestu þakkir fyrir. Einnig gafst tækifæri til að kynna sér starfsemina og skoða aðstöðuna.