dagþjálfun

Múlabær

Múlabær, dagþjálfun aldraðra og öryrkja er sjálfseignarstofnun sem rekin er á daggjöldum frá Sjúkratryggingum íslands og greiðsluþátttöku skjólstæðinga. Dagþjálfunin er fyrir einstaklinga sem búa í sjálfstæðri búsetu. Annars vegar er um að ræða 52 almenn sérhæfð dagdvalarrými og hins vegar 18 sérhæfð endurhæfingapláss.
Umsókn er í formi beiðnar frá heilbrigðisstarfsmanni, eins og heimilislækni, heimaþjónustu, starfsmanni LSH eða sérfræðilækni.

Markmið Múlabæjar er að efla og styðja skjólstæðinga til virkni og þjálfunar og stuðla þannig að vellíðan og sjálfstæði einstaklingsins.

Einkunnarorð Múlabæjar eru virðing, virkni og vellíðan

Um Múlabæ

Múlabær var stofnaður árið 1982 af Samtökum aldraðra (SA), Reykjavíkurdeild Rauða krossins (RRKÍ) og Sambandi íslenskra brjóstholssjúklinga (SÍBS). Fyrsti samningur við ríkið um dagdvöl fyrir aldraða var undirritaður þann 6.1. árið 1983 og þann 27.1.1983 hófst starfsemin í húsnæði SÍBS að Ármúla 34. Breyting var á fulltrúaráði þegar Félag eldri borgara kom inn í stað SA og árið 2023 tók Örykjabandalag Íslands (ÖBÍ réttindasamtök) sæti í fulltrúaráði í stað RRKÍ.

Fulltrúaráð er skipað tveimur fulltrúum hvers aðildarfélags sem hefur það meginhlutverk að skipa í 5 manna stjórn Múlabæjar. Stjórn ræður forstöðumann sem ber ábyrgð á rekstrinum. Múlabær er óhagnaðardrifin (non-profit) sjálfseignarstofnun.

Árið 2018 flutti Múlabær starfsemina að Síðumúla 32 í húsnæði sem hannað var fyrir starfsemina.

Forstöðumaður Múlabæjar er Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Aðalheiður Elín Bergsdóttir hjúkrunarfræðingur

Anna Hjartardóttir, hjúkrunarfræðingur

Astrid Eiríksdóttir, leiðbeinandi á vinnustofu

Dagný Egilsdóttir, skrifstofustjóri

Gíslína Vilborg Gunnsteinsdóttir, ráðskona

Hafdís Bjarnadóttir, sjúkraliði og tannfræðingur

Heiða Dís Einarsdóttir, leiðbeinandi/virkniþjálfi

Ingunn Jónsdóttir, leiðbeinandi/virkniþjálfi

Linda Björk Eiríksdóttir, þroskaþjálfi og sjúkraliði

Kristín S. Friðriksdóttir, leiðbeinandi

Karla Dögg Karlsdóttir, myndlistakennari

Marta Rybybcia, framreiðsla

Ragnheiður Sigurgeirsdóttir, sjúkraliði

Rósa Jónsdóttir, sjúkraþjálfari

Rósbjörg S. Þórðardóttir, tómstundafræðingur og sjúkraliði

Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri

Þórey Hákonardóttir, íþróttafræðingur

Þórunn Bjarney Garðarsdóttir, hjúkrunarfræðingur/forstöðumaður

Andrjes Guðmundsson, formaður

Margrét Albertsdóttir
Albert Ingason
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Ingibjörg Óskarsdóttir
Viðar Eggertsson

Varamenn:
Árni Gunnarsson
Dóra Ingvadóttir

Geir Guðsteinsson
Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir

Svana Gunnarsdóttir, formaður
Gunnhildur Sveinsdóttir
Sigríður Ásta Hallgrímsdóttir
Sigurjón Einarsson
Sverrir Kaaber

Varamenn:

Fríða Rún Þórðardóttir
Albert Ingason
Stefanía Valgeirsdóttir

Guðjón Brjánsson 1982-1989

Hallbera Friðriksdóttir 1989-2010

Agnes Raymondsdóttir 2010-2013

Í Múlabæ hefur í nokkur ár verið starfræktur Gjafa- og styrktarsjóður Múlabæjar.  Tilgangur sjóðsins er að fjármagna kaup á tækjum og búnaði sem nýtist starfsemi Múlabæjar.  Hafa fjölmargir einstaklingar styrkt starfsemina með framlögum í sjóðinn, sem komið hafa að góðum notum.  Erum við þessum aðilum afar þakklát.

Vorið 2024 var Múlabær skráður á almannaheillaskrá hjá Skattinum.  Þar með njóta frjáls framlög einstaklinga og lögaðila tiltekins frádráttar frá tekjuskatti, í samræmi við skattalög hverju sinni.  Nú eru t.d. framlög á bilinu kr. 10.000 – kr. 350.000 pr. einstakling frádráttarbær frá tekjuskattsstofni viðkomandi einstaklings við álagningu skatta árið eftir.  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu skattsins, https://www.skatturinn.is/einstaklingar/tekjur-og-fradraettir/skattfradrattur-vegna-gjafa-framlaga/

Styrktarsjóður Múlabæjar:

Banki: 133-15-380757

Kennitala: 580310-0440

Netfang: thorunn.mulabaer@internet.is

Vinsamlega tilgreinið kennitölu greiðanda.

Aðstaðan

Formleg opnun á nýju svæði fór fram 14.11.2024. Við stækkunina fór húsnæði Múlabæjar úr tæplega 800 fermetrum í rúmlega 1150 fermetra. Á nýja svæðinu er tækjasalur sem m.a. er búinn styrktartækjum frá HUR, aðstaða fyrir sjúkraþjálfun, vinnustofa, bað, hársnyrting, fótaaðgerð, viðtalsherbergi, “Torgið” og “Kyrrðin”.

Heilbrigðisráðherra ásamt mörgum góðum gestum heiðruðu okkur með nærveru sinni.

Einnig er í húsnæðinu æfingasalur, listasmiðja, eldhús og matsalur, setustofa, hvíld ásamt heilsugæslu og fundarherbergjum.