Stækkun Múlabæjar

Formleg opnun á nýju svæði fór fram 14.11. 2024 Við stækkunina fór húsnæði Múlabæjar úr tæplega 800 fermetrum í rúmlega 1150 fermetra. Á nýja svæðinu er tækjasalur sem m.a. er búinn styrktartækjum frá HUR, aðstaða fyrir sjúkraþjálfun, vinnustofa, bað, hársnyrting, fótaaðgerð, viðtalsherbergi, “Torgið” og “Kyrrðin”.

Heilbrigðisráðherra ásamt mörgum góðum gestum heiðruðu okkur með nærveru sinni. Það var mikill samhljómur meðal viðstaddra um að nauðsynlegt sé að veita öldruðum gott aðgengi að fjölbreyttri virkni til að viðhalda færni og stuðla að góðum lífsgæðum ævina á enda. Það er reynsla okkar að forsenda þess að ná árangri er að hafa fagfólk til að leiðbeina, hvetja og styðja við notendur sem endurspeglast í einkunnarorðum Múlabæjar; virðing, virkni og vellíðan.

Skjólstæðingur Múlabæjar, Erla Strand, kom með hugmyndina að formlegri opnun og útvegaði hún veglegan borða sem Maríanna Bjarnadóttir klippti á og leiddi hún síðan gesti inn í nýju húsakynnin. Frábær dagur og stór tímamót í sögu Múlabæjar.