Dagleg starsemi

Dagskrá

Múlabær, dagþjálfun aldraðra og öryrkja, er sjálfseignarstofnun sem rekin er á daggjöldum frá Sjúkratryggingum íslands og greiðsluþátttöku skjólstæðinga. Dagþjálfunin er fyrir einstaklinga sem búa í sjálfstæðri búsetu. Annars vegar er um að ræða 52 almenn sérhæfð dagdvalarrými og hins vegar 18 sérhæfð endurhæfingapláss.

Umsókn er í formi beiðnar frá heilbrigðisstarfsmanni, eins og heimilislækni, heimaþjónustu, starfsmanni LSH eða sérfræðilækni.

Markmið Múlabæjar er að efla og styðja skjólstæðinga til virkni og þjálfunar og stuðla þannig að vellíðan og sjálfstæði einstaklingsins.

Einkunnarorð Múlabæjar eru virðing, virkni og vellíðan

Hafragrautur, AB-mjólk, sveskjur, rúsínur, Al-Bran, kanill, púðursykur og lýsisperlur. Einnig
smurt braut með áleggi, t.d. osti, rúllupylsu, kæfu og eggjum. Ávextir; appelsínur, bananar og
epli.
Uppáhellt kaffi, kaffivél, vatnsvél og trönuberjasafi ásamt heimatilbúnum engifersafa.

Boðið er upp á fjölbreyttan mat frá Matborðinu (tengill). Matseðill liggur fyrir með viku fyrirvara.

Boðið er upp á kaffi og með því kl 14:30. Fjölbreytt úrval af brauði, kökum og öðru góðgæti.

Hjúkrunarfræðingar sinna öllum helstu hjúkrunarverkum. Einnig fer fram komumat, endurmat, ráðgjöf og áhersla er á forvarnir.

Í tækjasal eru HUR-æfingatæki, NuStep fjölþjálfar, göngubretti og hjól. Einnig eru ýmis minni æfingatæki, teygjur og boltar ásamt jafnvægisdýnu.

Allir skjólstæðingar eru hvattir til að nýta tækjasalinn til að viðhalda og bæta styrk, jafnvægi og liðleika.

Sjúkraþjálfari setur upp æfingaáætlun fyrir alla sem eru í endurhæfingu. Þeir fá einnig sjúkraþjálfun ef beiðni liggur fyrir.

Daglega fer fram stólaleikfimi, bæði kl 11:00 og kl 11:35. Prógrammið felur í sér fjölbreyttar æfingar, teygjur og slökun. Skjólstæðingum er skipt í tvo hópa, gulan og rauðan.

Starfsfólk aðstoðar við val á verkefnum og veitir tilsögn.

Starfsfólk aðstoðar við val á verkefnum og veitir tilsögn.

Daglega er boðið upp á göngutúr og blaðalestur. Lagt er upp með að hafa fjölbreytt félagsstarf eins og leiki, söng og dans, spil og heimsóknir góðra gesta.
Yfir sumarmánuðina er boðið upp á ferðalög.